Skip to content

hallaemilia/vika4

Folders and files

NameName
Last commit message
Last commit date

Latest commit

 

History

2 Commits
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Repository files navigation

Vefforritun 1, 2023: Verkefni 4, CSS #2

Kynning í fyrirlestri.

Markmið

  • Nota flexbox til að stýra útliti
  • Nota CSS custom properties (variables, breytur)

Verkefni 2–6

Í verkefnum 2–6 munum við vinna áfram með sama verkefni og byggja ofan á það:

  • Verkefni 2 skilgreinir grunn HTML og síður.
  • Verkefni 3 bætir við grunn viðmóti.
  • Verkefni 4 setur upp útlit (e. layout).
  • Verkefni 5 setur upp grind og gerir útlit skalanlegt (e. responsive).
  • Verkefni 6 setur upp tól til að hjálpa við skipulag og vinnu.

Verkefnið

Verkefnið er framhald af verkefni 3, nýtir það efni sem uppsett er í því, og fylgir þeirri verkefnalýsingu. Leyfilegt er að nota sýnilausn að verkefni 3, sem gefin verður út föstudaginn 15. september.

Nú skal bæta við einföldu útliti á efnið með CSS. Allt útlitið skal vera í ./styles.css og allar HTML skrár skulu vísa í það.

Útlit

Fyrirmynd að útliti er í fyrirmynd/ möppu. Öll skjáskot eru tekin í 1000px breiðum Firefox vafra. Athugið að fyrirmynd er uppfærð frá verkefni 3.

Þar sem allt útlit skal útfæra í einni CSS skrá, skal huga að cascade og erfðum, þó er fullkomlega eðlilegt að endurtaka eigindi, en t.d. fyrir málsgreinar (<p>) þarf aðeins að taka fram einu sinni hvert margin þeirra er. Fyrir útlit sem notar „box“ er hægt að útfæra einu sinni og endurtaka þrisvar sinnum.

Allt það sem tekið er fram í verkefni 3 gildir áfram nema annað komi fram hér.

Almennt

Gefið er styles.css skjal með grunn að lausn.

Gefið er HTML úr sýnilausn sem er æskilegt að nota, en ekki krafa.

CSS Custom Properties

Nota skal skilgreind CSS custom properties sem gefin eru í styles.css.

Box

Útfæra skal .box með því útliti sem kemur fram í fyrirmynd og nota sömu skilgreiningu á öllum stöðum.

Myndir

Búið er að uppfæra myndir frá verkefni 3. Á „Um“ síðu skal birta myndir þar sem þær eru að hámarki 400px háar og alltaf birtar frá topp og miðju (nota skal object-fit og object-position).

Leturgerðir

Nota skal Lora fyrir fyrirsagnir og Noto Sans Display fyrir meginmál leturgerðirnar frá Google Fonts. Sækja skal leturgerðirnar og geyma í fonts/.

Takmarkanir

Aðeins skal nota eftirfarandi eigindi, og ef tekið fram, viðeigandi gildi:

  • background-color
  • border og nánari skilgreiningar
  • box-sizing
  • color
  • display: flex;
    • önnur flex eigindi og gap
    • ekki skal nota önnur gildi fyrir display
  • font-display
  • font-family
  • font-style
  • font-weight
  • list-style: none;
  • margin-bottom og margin-top
    • ekki ætti að nota margin-left og margin-right heldur flexbox
  • padding eigindi
  • src
  • width, max-width, max-height
  • Þau eigindi notuð í .sr-only og ekki tiltekin hér ætti ekki að nota í annað.

Ekki skal nota önnur display gildi en display: flex; og ekki nota text-align til að miðja efni.

Ekki þarf að huga að skalanleika (síðan þarf ekki að líta vel út í undir 800px skjá).

Netlify

Setja skal upp verkefni á Netlify með því að hlaða upp skrám með „manual deploy“ eða tengja GitHub repo.

Mat

  • 20% – Snyrtilega uppsett og gilt CSS.
  • 20% – Aðeins leyfileg eigindi og gildi notuð.
  • 60% – Útlit skv. fyrirmynd.

Sett fyrir

Verkefni sett fyrir í fyrirlestri mánudaginn 11. september 2023.

Skil

Skila skal í Canvas, seinasta lagi fyrir lok dags fimmtudaginn 21. september 2023.

Skilaboð skulu innihalda:

  • zip skrá með öllum skrám eða hlekkur á almennt (e. public) GitHub.
  • slóð á verkefni keyrandi á Netlify sem athugasemd („Add comment“ eða „Bæta við athugasemd“ á skilaskjá í Canvas).

Skila má eins oft og þið viljið þar til skilafrestur rennur út.

Einkunn

Leyfilegt er að ræða, og vinna saman að verkefni en skrifið ykkar eigin lausn. Ef tvær eða fleiri lausnir eru mjög líkar þarf að færa rök fyrir því, annars munu allir hlutaðeigandi hugsanlega fá 0 fyrir verkefnið.

Ef stórt mállíkan (LLM, „gervigreind“, t.d. ChatGTP) er notað til að skrifa part af lausn skal taka það fram. Sjá nánar á upplýsingasíða um gervigreind hjá HÍ.

Sett verða fyrir tíu minni verkefni þar sem átta bestu gilda 5% hvert, samtals 40% af lokaeinkunn.

Sett verða fyrir tvö hópverkefni þar sem hvort um sig gildir 10%, samtals 20% af lokaeinkunn.

Útgáfa 0.1

About

No description, website, or topics provided.

Resources

Stars

Watchers

Forks

Releases

No releases published

Packages

No packages published